UM FÉLAGIÐ

Heimasjúkraþjálfun, félag heimasjúkraþjálfara á höfuðborgarsvæðinu, var stofnað þann 29. maí 2015 af sautján sjúkraþjálfurum sem hafa heimasjúkraþjálfun að aðalstarfi. 

Markmið félagsins er að halda utan um heimasjúkraþjálfun á höfuborgarsvæðinu.

Fyrsta beiðnin um sjúkraþjálfun í heimahúsi var skrifuð árið 1993.  Síðan þá hefur eftirspurn farið mjög vaxandi.  Eykst hún í réttu hlutfalli við fjölgun aldraðra, fatlaðra og sjúkra sem geta ekki nýtt sér endurhæfingu utan heimilis.

Innan félagsins starfar stjórn, framkvæmdastjóri og þjónustustjóri.

Þjónustustjóri:

Sigurbjörg Júlíusdóttir sjúkraþjálfari, tekur á móti óskum um heimasjúkraþjálfun og hefur milligöngu um að viðkomandi fái sjúkraþjálfara.

Stjórn félagsins:

Jakobína Edda Sigurðardóttir formaður
Elín S. Jónsdóttir ritari
Aðalheiður K. Þórarinsdóttir meðstjórnandi
Birna Aubertsdóttir meðstjórnandi
Sigurbjörg Júlíusdóttir meðstjórnandi

Framkvæmdastjóri:

Jakobína Edda Sigurðardóttir