Umsóknarferli

Sjúkraþjálfun í heimahúsum er ætluð fólki sem ekki á heimangengt heilsu sinnar vegna.

Lögum samkvæmt er „beiðni um heimasjúkraþjálfun“  sem skrifuð er af lækni alltaf forsenda heimasjúkraþjálfunar.  Allir læknar geta skrifað beiðni um heimasjúkraþjálfun.

Algengast er að læknar starfandi á sjúkrahúsum og heilsugæslulæknar skrifi beiðni og óski eftir heimasjúkraþjálfun en aðrir sérfræðingar gera það einnig.

Þegar beiðni hefur verið útveguð er haft samband við þjónustustjóra Heimasjúkraþjálfunar sem tekur á móti upplýsingum og svarar fyrirspurnum í síma 8604080.

Reynt er að hafa biðtíma eftir heimasjúkraþjálfun eins stuttan og mögulegt er.

Beiðnir fyrir heimasjúkraþjálfun sendast til:

Heimasjúkraþjálfun,

Pósthólf 10035

Reykjavík